Howdy!!
Sko, sjáið hvað ég er dugleg að blogga... en þrátt fyrir þa kommenta mjöööööög fáir.. stelpur.. ég er ekki nógu ánægð með ykkur 
Stelpudjammið síðustu helgi var ógeðslega gaman... við byrjuðum heima hjá mér, þar sem ég bakaði pizzu handa skvísunum... Ég, Guðný, Jónína, Mona, Jenný og Helena hittumst heima og fórum þaðan niðrá 7-9-13, þar sem rikki var að halda partý... get ekki sagt að það hafi verið neitt sérstaklega gaman, þar sem við vorum örugglega elstar þarna inni :/
Við ákváðum þá bara að fara einhvert annað... fórum á Victor, til að athuga hvort okkur yrði hent út fyrir að vera EKKI Pólverjar, en nei, það tókst ekki... og urðum við á nokkrum mínútum umkringdar af skítugum Pólverjum.
Við (eða aðallega Jónína) eignuðumst þroskaheftann vin þar inni sem gaf jónínu tvö ástarbréf, ásamt símanúmerinu sínu.. einnig bauð hann henni með sér til Noregs... oh hún er svo sæt þessi skvísa... kemst á sjéns hvar sem hún er
híhíhíhí
Við ákváðum svo að flýja yfir á Thorvaldsen þar sem við kynntumst 3 Amerískum strákum... við lentum á hörkuspjalli með þeim...
Þar lenti Jónína líka á sjens með svona sextugum kalli sem var alltaf að snerta hana og sleykja á henni öxlina... oj!! **HROLLUR** en svo á endanum tókst okkur að henda honum út... (Hef sjaldan, eða jafnvel aldrei séð Jónínu svona reiða)
Fórum þaðan með Ameríkanana yfir á Apótekið þar sem við kynnutumst fullt af þjóðverjum... ég spurði þá alla hvort þeir haben einen grosse kirkeschlange... þeir voru ekkert að skilja mig... held þeir hafi bara haft eine kleine slange... hahahaha...
Já... fór þaðan og hitti Ingvar og Smára og kom heim um hálf fimm...
Þetta djamm sló alveg í gegn.. alltaf gaman að djamma með Monu og Jónínu þar sem við förum alltaf í einhver skemmtileg mission!! J
Vikan gekk eins og venjulega, nema ég var í þvílíku stressi að klára að lesa P.S I love you... við fórum svo á hana á laugardaginn, ég, Erla, Unnur, Fjóla og Guðný... oh alveg yndisleg mynd, þrátt fyrir ógeðslega leiðinlegar stelpur sem voru að hlæja allan tímann... OJ!!! **PIRR**
Jæja.. ætla að halda áfram að vinna... J
Við heyrumst.. og verið nú dugleg að kommenta!