Klöppum fyrir árinu 2008!!!!!

14.02.2008 14:25:39 / icethelma

bless blog.central.is

ég er komin með nóg. og er farin yfir á bloggar.is
færði allar færslur árs 2008 þangað yfir

www.thelmak.bloggar.is

tjékkit át og kommentið! :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 13:17:17 / icethelma

djamm saga

Howdy!!

Sko, sjáið hvað ég er dugleg að blogga... en þrátt fyrir þa kommenta mjöööööög fáir.. stelpur.. ég er ekki nógu ánægð með ykkur ;)

Stelpudjammið síðustu helgi var ógeðslega gaman... við byrjuðum heima hjá mér, þar sem ég bakaði pizzu handa skvísunum... Ég, Guðný, Jónína, Mona, Jenný og Helena hittumst heima og fórum þaðan niðrá  7-9-13, þar sem rikki var að halda partý... get ekki sagt að það hafi verið neitt sérstaklega gaman, þar sem við vorum örugglega elstar þarna inni :/
Við ákváðum þá bara að fara einhvert annað... fórum á Victor, til að athuga hvort okkur yrði hent út fyrir að vera EKKI Pólverjar, en nei, það tókst ekki... og urðum við á nokkrum mínútum umkringdar af skítugum Pólverjum.
Við (eða aðallega Jónína) eignuðumst þroskaheftann vin þar inni sem gaf jónínu tvö ástarbréf, ásamt símanúmerinu sínu.. einnig bauð hann henni með sér til Noregs... oh hún er svo sæt þessi skvísa... kemst á sjéns hvar sem hún er ;) híhíhíhí
Við ákváðum svo að flýja yfir á Thorvaldsen þar sem við kynntumst 3 Amerískum strákum...  við lentum á hörkuspjalli með þeim...
Þar lenti Jónína líka á sjens með svona sextugum kalli sem var alltaf að snerta hana og sleykja á henni öxlina... oj!! **HROLLUR** en svo á endanum tókst okkur að henda honum út... (Hef sjaldan, eða jafnvel aldrei séð Jónínu svona reiða)

Fórum þaðan með Ameríkanana yfir á Apótekið þar sem við kynnutumst fullt af þjóðverjum... ég spurði þá alla hvort þeir haben einen grosse kirkeschlange... þeir voru ekkert að skilja mig... held þeir hafi bara haft eine kleine slange... hahahaha...
Já... fór þaðan og hitti Ingvar og Smára og kom heim um hálf fimm...
Þetta djamm sló alveg í gegn.. alltaf gaman að djamma með Monu og Jónínu þar sem við förum alltaf í einhver skemmtileg mission!!
J

Vikan gekk eins og venjulega, nema ég var í þvílíku stressi að klára að lesa P.S I love you... við fórum svo á hana á laugardaginn, ég, Erla, Unnur, Fjóla og Guðný... oh alveg yndisleg mynd, þrátt fyrir ógeðslega leiðinlegar stelpur sem voru að hlæja allan tímann... OJ!!! **PIRR**

Jæja.. ætla að halda áfram að vinna... J

Við heyrumst.. og verið nú dugleg að kommenta!


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 11:40:40 / icethelma

blogg

Jæja. Ætli að sé ekki kominn tími á blogg frá mér? (ég virðist segja þetta svolítið oft.. er ég lélegur bloggari eða? Híhíhí;)

Hmmmmm... það er alveg margt búið að gerast... ég og Ingvar erum búin að fara í 3 danstíma og stöndum okkur alveg helvíti vel. Við allavegana erum búin að komast að því að við erum ekki svo miklir spýtukallar, bara smá... ;)
Það er reyndar búið að vera alveg ótrúlega gaman.... við erum búin að læra Cha cha cha, foxtrott, jive og tjútt (minnir mig) en erum náttúrulega ekki ennþá orðnir algjörir snillingar, en þetta er allt að koma... erum búin að læra nokkra flotta snúninga og svona.... ;)

Afmælið hennar Jónínu var um daginn og það var búningaþema... ef þið þekkið mig rétt þá vitið þið að ég elska þema partý... var reyndar í vandræðum með að finna búning.. en svo fór ég loksins sem G.I Jane og Ingvar sem G.I Joe... Myndirnar koma seinna...  Þetta var rosalega gaman....

Svo er stelpupartý núna um helgina og ætlum ég, mona, jónína, guðný og fjóla að skella okkur í partý hjá Rikka og Kidda, fyrrverandi Rúmfó vinnufélögum... oh.. ég hlakka ekkert smá til... langt síðan að við höfum farið á djammið... bara við stelpunar saman.

Hmmm... hef ég eitthvað meira að segja?
Nei ég held ekki...

nema það að það virðast allir vera óléttir í kringum mig.. hún Erla perla vinkona, Sandra, Rakel Tanja og Íris einnig eru Þóra og Ingunn æskuvinkonur óléttar... oh.. þetta er rosalegt!
J Ég er hætt að kippa mér upp við þessar fréttir... neee segi það ekki... en oftast þegar fólk segir nú við mig.. "ég þarf að segja þér svoldið" þá segi ég "ertu ólétt?" og ég hef oftast rétt fyrir mér... híhíhíhí

Jæja. Ætla að halda áfram að vinna..
Bæó


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 10:23:13 / icethelma

Ónefnd færsla

MeyjaMeyja: Hafðu þolinmæði til að halda áfram jafnvel þegar þú sérð engan árangur - það er viðhorfið sem kemur þér á áfangastað. Vinir hjálpa þér að trúa. 

Já, þarna er stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag, og ég verð að segja að mér líst vel á hana :)

En ég var víst kitluð þannig að ég neyðist til þess að gera eitthvað svona:

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1. Láta alla vita sem ég elska hvað þau skipta mig miklu máli
2. Kaupa mér draumahúsið mitt
3. Eignast 3 börn
4. Klára skólann
5. Gifta mig
6. Fara aftur í fallhlífastökk
7. Ferðast eins mikið og ég get

Sjö hlutir sem ég get:

1. Borðað endalaust án þess að verða södd
2. sofið eeeeendalaust
3. keyrt bíl
4. talað ensku
5. snert nefið með tungunni
6. shop till I drop
7. hoppað út úr flugvél í 10.000 feta hæð ;)

Sjö hlutir sem ég get ekki:

1. staðið á höndum
2. hvíslað
3. Ratað
4. verið alvarleg á myndum
5. flogið
6. sleikt á mér olnbogann
7. lagt í stæði sem er svona á hlið

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

1. Bros
2. augu
3. upphandleggir
4. bros
5.snyrtilegar neglur/hendur
6. Fallegur líkami
7. góður húmor

Sjö þekktir sem heilla:


1. Matthew Maconahjú
2. Jessica Alba
3. George Clooney
4. Vince Vaugn..
5. ...
6. ...
7. ...

Sjö orð/setningar sem ég segi oft

1. Hæ
2. hvað segirðu?
3. segðu mér sögu (á morgnana þegar ingvar er að reyna að vekja mig)
4. Ingvaaaaaaaaaaaar
5. oh ég veit ekki
6. oh my god
7. mp thelma

Sjö hlutir sem ég sé núna

1. Valla
2. Ívar
3. Gumma
4. Styrkár
5. tölvuna mína
6. i-podinn minn
7.símann minn

Sjö kítlaðar manneskjur

1. Freyja
2. Þóra
3. Vilma
4. Emma
5. Guðrún
6. Jónína (sem bloggar aldrei)
7. Sindri

Guði sé lof að þetta sé búið...


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 15:38:40 / icethelma

OMG

OMG!!!

Ég og Ingvar (spýtukallarnir)  erum að fara í FYRSTA danstímann okkar í kvöld... Við reyndum að æfa okkur aðeins heima í gær og komumst að því að við bara kunnum alls ekki að dansa...
þessvegna er gott að fara á dansnámskeið :)

Svo á þriðjudaginn erum við að fara í keppni í FÉLAGSVIST... jamm... ;) hehehe

Við erum orðin eins og gömul hjón

 

Wish us luck ;)

Tk


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 19:41:54 / icethelma

2007

Já það er hægt að segja að þetta ár hafi verið MJÖG viðburðarríkt... og ekki er ég þá að tala um á hinn besta hátt

 Janúar.
*mamma, ragna og jónína áttu afmæli
*fór með stelpunum úr enskunni til miðils (eða hann kom til okkar)
*maaaaaargar vísinda/djammferðir

Febrúar
*Guðný átti afmæli
*Man ekki vel eftir því en ég djammaði 3 kvöld í röð... úff.. that was aweful!
*Sá ROTTU í fyrsta sinn ever
*fleiri vísinda/djammferðir

Mars
*Djamm
*Árshátíð enskunnar
*Bústaðarferð

Apríl
*Fór í aðgerð vegna þess að það fundust 2 hnútar í brjóstinu á mér
*LÆRDÓMUR!!!!
*Elsku Tristan Alexander kveður þetta líf skyndilega

Maí
*Tristan litli jarðaður
*Ég flyt inn til jónínu
*Eurovision - prófloka - kokteila - stelpupartý
*Erla gæsuð
*Ég klessti á
*Ég náði öllum prófunum


 Júní
*Tristan Alexander hefði orðið eins árs.
*Erla og Bjarki giftu sig
*Susie Rut, gömul vinkona mín dó.

*Ingvar átti 30 ára afmæli þar sem Jónína kynnti okkur TAKK TAKK TAKK TAKK :)
100_0509.jpg picture by icethelma100_1101.jpg picture by icethelma

Júlí
*Fór með Árna Tómasi, Eddu og Gunna á Skagaströnd að hitta Ingvar sæta og hans fjölskyldu
*Fór á Grundarfjörð með Guðnýju, Ingvari og vinum og bræðrum Ingvars
*Jájá... gerði lítið annað en að svífa á bleiku skýji þennan mánuð ;) hehehehe

Ágúst
*Fór til USA
*Fór á nokkra tónleika, m.a. Linkin Park, My Chemical Romance og Beach Boys
*Fór í FALLHLÍFASTÖKK
*Mamma greindist með krabbamein

September
*Ég átti afmæli
*Hélt svaka afmælispartý ásamt Erlu beibí þar sem ég var fárveik!

Október
*Fórum í fjölskyldumyndatöku
*Fórum á Hótel Heklu, öll fjölskyldan
*Ingvar flutti í Skipholt 15
*Mamma mín lætur undan í baráttunni við krabbameinið 28 október

Nóvember
*Mamma var jörðuð
*Ég fékk æðislega vinnu daginn sem mamma var jörðuð, hjá MP Fjárfestingarbanka
*Pabbi átti 60 ára afmæli
*Gillý, mágkona Rögnu lést úr krabbameini eftir erfiða, en hetjulega baráttu

Desember
*Ég og Ingvar skelltum okkur norður á Skagaströnd fyrstu helgina í desember
*Áttum yndisleg jól ásamt Pabba, Rögnu, Agli, Eydísi, Einari og manni Gillýjar
*skelltum okkur aftur á Skagaströnd milli jóla og nýjárs.

(Er ekki enn búin að taka myndirnar úr myndavélinni)

Já ekki margt annað sem hægt er að segja frá.
Get ekki sagt að þetta ár hafi verið neitt sérstaklega frábært! hlakka til þegar nýtt ár byrjar! ójá, ég bind miklar vonir við árið 2008

Á árinu 2007 er ég þó búin  að kynnast fullt af yndislegu fólki og þar fremstur í röð er hann Ingvar minn. Án hans hefði þetta ár verið ennþá verra. Ég hefði ekki komist í gengum alla þessa erfiðleika án hans.
Einnig kynntist ég allri fjölskyldunni hans (og já, hann á sko stóra fjölskyldu, 10 systkyni (og fullt af litlum frænkum og frændum) sem hafa reynst mér vel) Ég tel mig vera mjög heppna að hafa kynnst þeim öllum. Þau eru yndisleg, öll með tölu.

Vil enda þessa færslu á að þakka öllum þeim sem studdu mig á erfiðum tímum. Þið eruð bestu vinir sem hægt er að hugsa sér (þið vitið hver þið eruð;)
Jæja.. sjáumst hress á nýju ári.

tk


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 11:15:37 / icethelma

allt að gerast

Helgin var alveg æðisleg!!

Við lögðum af stað á fimmtudaginn klukkan 6 og náðum að komast á áfangastað um 10 leytið.
Þar var tekið á móti okkur af fullt af yndislegu fólki. Reyndar var ekki vakað mikið lengi þar sem þreytan eftir aksturinn var alveg að fara með okkur.

Á föstudaginn var mest lítið gert, skruppum á Blönduós að heimsækja systur Ingvars á spítalann og fórum svo í mat til mömmu hans Ingvars.
Svo um kvöldið var farið á krókinn í heimsókn til Odds (bróðir Ingvars) og Tinnu. Þar var glápt á sjónvarp og spilað fram eftir nóttu.

Daginn eftir var farið aftur á skagaströnd í mat til Sigrúnar (systur Ingvars) og var svo farið til Guðrúnar (systur Ingvars) og spilað Mr and Mrs, Actionary og svo haldið á Kántrýbæ.

Á sunnudaginn var tók letin við og við sváfum til 12, fengum pizzu í morgunmat ala Sigrún og kvöddum alla (það tók allavegana 1 ½ tíma) og héldum svo heim á leið.

Það var yndislegt að fá að taka eina svona rólega helgi í burtu frá brjálæðinu í bænum. Ekkert stress.

En nú er stressið  aftur tekið við og mun vera á fullu fram að jólum, svo vonandi (ef ég fæ frí í vinnunni) förum við aftur á Skagaströnd milli jóla og nýárs.

Annars þá erum ég og Ingvar búin að skrá okkur á samkvæmisdans námskeið hjá Dansskóla Jón Péturs og Köru og byrjum við á fullu í janúar.

Einnig skráðum við okkur í Golfklúbbinn Guttorm Tudda. Í þeim klúbbi gerist alltaf eitthvað mánaðarlega og verða svo golfmót í sumar. Við tókum við þátt í keilumóti fyrir um viku og tókst okkur nýliðunum að rústa keppninni... Ingvar fékk 277 stig og vann karlana og ég fékk 292 og vann konurnar (og reyndar karlana líka, en það á víst ekki að skipta neinu hehe) Það má semsagt segja að við höfum komið séð og sigrað... og ætlum við að koma sterk inn í félagsvistar mótinu í janúar ;) hehehehehe riiiiiight, kann ekkert í félagsvist! :)

Jæja, ætla aftur í vinnugírinn..

Kv. Thelma


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 14:27:26 / icethelma

Nýtt blogg

Jæja.. ætli það sé ekki kominn tími á nýtt blogg. 

en svona áður en ég byrja vil ég þakka ykkur öllum fyrir heimsóknir, símtöl, sms, comment, blóm, kort, skeyti og fleiri kveðjur á þessum erfiða tíma. Ég hef alveg áttað mig á hverjir vinir mínir eru eftir þetta.

Annars er ekki mikið að frétta. Ingvar er fluttur heim í Skipholtið.. erum alveg að vera búin að tæma íbúðina hans.

Jónína er búin að fá sér hvolp sem er alveg eins og Snælda, bara svartur strákur.

Ég er komin með nýja vinnu: Hjá MP Fjárfestingabanka... Ég er ótrúlega sátt og gæti ekki hugsað mér betri vinnu.

Ég og Ingvar ætlum að skrá okkur á dansnámskeið eftir áramót og ef það eru einhverjir sem hafa áhuga á að koma með okkur þá megiði endilega láta mig vita. :) Væri gaman að fara smá hópur :)

6-7-8-9 desember förum ég og Ingvar á Skagaströnd að heimsækja mömmu hans og 3 systur sem búa þar. Er farin að hlakka mikið til.. verður líka gaman að komast aðeins út úr Reykjavík. :)

Jæja. ætla ekki að hafa þessa færslu lengri.

 Heyrumst

TK

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 19:42:05 / icethelma


» 18 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 15:55:53 / icethelma

það er kominn vetur!!

Já... það er sko satt...

Greyjið endurnar og svanirnir á tjörninni eru frosin föst!!! ég er með mikinn móral yfir þessu og langar mest að hlaupa út á tjörn með heitt vatn og losa þau... en í staðin sendum við hjá símaverinu menn til þess að gera þetta fyrir okkur....

sendi HLÝJA strauma til andanna og svananna!!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 11:41:57 / icethelma

well well well

Meyja Meyja: Núna er ekkert vandamál sem má ekki leysa áður en það kemur upp. Frá bílabilun til fjölskylduátaka. Með smá forsjá geturðu grætt háar upphæðir.

Ef þetta er rétt þá er bíllinn minn að fara að komast í lag, mamma að fara að læknast og ég er að fara að verða rík!!

Þá get ég loksins keypt mér íbúð!! 

ekki amarleg stjörnuspá þetta ;)

 

tk

5. okt. - Bíllinn fer í viðgerð eftir helgi... Mamma er komin aftur á krabbameins lyfin og ég fór í atvinnuviðtal í dag og fer í annað á mánudaginn.


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 19:08:00 / icethelma

Eilífðarhamingja

Eilífðarhamingja:

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að halda maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.

En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni.

Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft niður undir hné.

En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri dagur.

Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við þessum þremur hlutum 1. Rigningardegi 2. Týndum farangri 3. Flæktu jólatrésskrauti

Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama og að skapa sér líf.

Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hafnabolta-hanska á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.

Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir ekki hvernig þú lætur því líða.

Sendu þessa orðsendingu til að minnsta kosti fimm frábærra kvenna í dag og eitthvað gott verður á vegi þínum... Þú hefur í það minnsta sagt öðrum konum að þér finnst þær frábærar, og kannski færðu þær til að brosa.

En ef þú ekki gerir þetta... þá bilar rennilásinn og sokkabuxurnar rúlla niður á hæla, þangað sem ítölsku skórnir meiða þig...!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 11:52:17 / icethelma

komin heim

 

 Jæja þá er maður loksins komin heim!!! þessar þrjár vikur voru leeeeengi að líða þó þær hafi verið skemmtilegar, en söknuður í garð vina, fjölskyldu og Ingvars tók völdin strax á fyrstu dögum og áttaði ég mig algerlega hvar ég á heima núna!!! Home is where the heart is!!

En annars þá var mikið brallað úti og nenni ég ekki að tala eitthvað allt of lengi um það.... ég ætla að stikla á stóru

  • Ég fór nokkrar ferðir niður árnar á kajak og venjulega fylgir því nokkur kælibox af bjór... ein af skemmtilegustu leiðunum til að drekka!
  • Ég fór á tónleika með Beach Boys
                          HIM
                          Taking back sunday
                          Placebo
                          My Chemical Romance
                          Linkin Park
  • Það var náttúrulega djammað eins og rokkstjörnur, t.d á skemmtistöðunum við bryggjuna, í partýjum og á börum....
  • Eyddum 3 dögum í strandhúsi og "nutum" þess að BRENNA 8|
  • Ég fór í fallhlífastökk (myndir og myndband koma síðar)
  • Það var miiiiiikið verslað sem fól í sér MIKLA yfirvikt sem ég þurfti ekki að borga því að viktin í Boston flugvelli var biluð... híhíhíhíhí!!!

 Já það var hellingur sem ég gerði og ég nenni einfaldlega ekki að nefna fleira...  geri það kanski seinna :)
Það er yndislegt að vera komin heim... fór beint í heimsókn til Erlu og svo í mat með Ingvari til Jónínu... Svo var pjöllukvöld strax daginn eftir og er búið að vera geggjað að koma heim!!!

Jamm.. svo byrjar skólinn á morgun... hlakka ekkert sérstaklega til... en ðets læf!

love you all!


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 20:30:27 / icethelma

USA here I come

  
    ÓMÆGAAAAD!!!

Ég fer út eftir


TVO daga!!!!

kem aftur heim 28 ágúst!! SEE YA! :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 00:22:15 / icethelma

skemmtilegt

Já lífið er óútreiknanlegt... Þegar maður er ekki að leita, og ekki að búast við neinu þá gerast hlutirnir... lífið er alveg yndislegt!

***ég fór á Skagaströnd um helgina með Gunna, Árna Tómasi og Eddu... það var æði!!***
***ég verð heima í eina viku núna***
***fer smá í sveitina, rétt fyrir utan borganes í næstu viku
á hestbak ofl.. vonandi golf og að veiða líka***
***fer svo að passa hús rögnu í viku***
***fer svo á Grundarfjörð í lok júlí með Ingvari og familíu á einhverja hátíð þar***
***Fer svo til USA í 3 vikur 6 ágúst***

Það er ógeðslega mikið að gera og ég er svo hamingjusöm... lífið er frábært.... Góðir vinir og frábær fjölskylda... maður gæti ekki beðið um meira :)

love you all!!!
knús og kossar!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3